Enn versnar útlitið hjá Cimber Sterling
Danska lággjaldaflugfélaginu Cimber Sterling hefur ekki gengið sem best frá því bréf þess voru skráð í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í lok síðasta árs. Gengi bréfanna hefur lækkað um 57% síðan og í morgun lækkaði gengið um 18% eftir að félagið sendi frá sér afkomuviðvörun og sagði ljóst að rekstaráætlanir fyrir þetta ár muni ekki standast.
Cimber Air, sem er með höfuðstöðvar í Sønderborg syðst á Jótlandi, keypti hluta af rekstri og flugvélar af þrotabúi lággjaldafélagsins Sterling á síðasta ári og breytti í kjölfarið nafninu í Cimber Sterling. Félagið var síðan skráð á markað í desember í kjölfar hlutabréfaútboðs. Upphafsgengi bréfanna var 9,40 danskar krónur en er nú 3,85 krónur.
Ýmislegt hefur gengið á í rekstrinum síðustu vikurnar. Starfsmenn þess reyndu m.a. að trufla samkeppni frá norska flugfélaginu Norwegian með því að kaupa hundruð flugmiða á tilboði norska félagsins í dönsku innanlandsflugi.



















