Viðskipti
| mbl
| 24.2.2010
| 6:38
Hyundai innkallar Sonata
Suður-kóreski bílaframleiðandinn Hyundai Motor tilkynnti í morgun, að innkalla þurfi um 50 þúsund bíla af gerðinni Sonata, sem seldir voru frá því í september á síðasta ári í Suður-Kóreu og Bandaríkjunum vegna galla í dyralæsingu.
Um er að ræða 1300 bíla sem seldir voru í Bandaríkjunum og 46 þúsund bíla sem seldir voru í Suður-Kóreu.
Bílaframleiðendur hafa verið í sviðsljósinu síðustu vikur en margir hafa þurft að innkalla bíla. Forsvarsmenn japanska bílaframleiðandans Toyota viðurkenndu í gær fyrir bandarískri þingnefnd, að ekki hefði tekist að koma í veg fyrir öryggisgalla á bílum þrátt fyrir innköllun á rúmlega 8 milljónum bíla um allan heim.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















