Viðskipti
| mbl
| 25.2.2010
| 8:45
Hagnaður France Telecom dróst saman um 26,3%
Hagnaður franska fjarskiptafyrirtækisins France Telecom dróst saman um 26,3% á síðasta ári. Unnið er að endurskipulagningu rekstrar hjá félaginu og reynt að ná fram hagræðingu. Fyrirtækið var talsvert í fréttum á síðasta ári vegna þess hve margir starfsmenn þess frömdu sjálfsvíg.
Nam hagnaður France Telecom á síðata ári 2,997 milljörðum evra, tæpum 700 milljörðum króna. Sala dróst saman á milli ára og nam 45,94 milljörðum evra. Á árinu 2008 nam hagnaður France Telecom 4,069 milljörðum evra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















