Viðskipti
| mbl
| 26.2.2010
| 19:38
Yfir 217 milljón króna velta með Marel
Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,68% í dag og er 879,17 stig. Mikil viðskipti voru bæði með hlutabréf og skuldabréf í Kauphöllinni í dag. Skuldabréfaveltan var 17,6 milljarðar króna en hlutabréfaveltan nam 274 milljónum króna. Alls var veltan með hlutabréf Marels 217 milljónir króna og hækkuðu bréfin um 3,40%. Færeyjabanki hækkaði um 2,04%.
Aðalfundur Marel Food Systems verður haldinn miðvikudaginn 3. mars. Eftirtaldir hafa boðið sig fram í stjórn félagsins:Arnar Þór Másson, Reykjavík
Árni Oddur Þórðarson, Reykjavík
Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Reykjavík
Friðrik Jóhannsson, Reykjavík
Helgi Magnússon, Seltjarnarnes
Lars Grundtvig, Árósum, Danmörku
Margrét Jónsdóttir, Seltjarnarnes
Theo Bruinsma, Oss, Hollandi
Smári Rúnar Þorvaldsson, Hafnarfirði
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















