Deutsche stendur að baki tilboði Actavis
Deutsche Bank kemur að tilboði Actavis í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Þetta kemur fram í þýska viðskiptablaðinu Financial Times Deutschland í dag. Auk Actavis þá hefur ísraelska lyfjafyrirtækið Teva einnig gert tilboð í Ratiopharm.
Fram kemur í blaðinu að Deutsche Bank geri tilboðið í Ratiopharm fyrir hönd Actavis þar sem að bankinn fari nú í raun með yfirráð yfir íslenska lyfjafyrirtækinu.
Sem kunnugt er þá skuldar Actavis þýska bankanum háar fjárhæðir og eins og greint var frá í Morgunblaðinu um miðjan janúar eru allar meginákvarðanir í rekstri lyfjafyrirtækisins þó háðar samráði við bankann og jafnvel frumkvæði Deutsche Bank, sem fjármagnaði yfirtöku Novators á félaginu árið 2007.
Athugasemd sett inn klukkan 10:34
Í yfirlýsingu sem forsvarsmenn Actavis sendu frá sér um miðjan janúar kemur fram að Actavis er að fullu í höndum hluthafa. „Núverandi stjórn félagsins, í umboði hluthafa, ræður stefnumótun og rekstri þess. Fréttir um annað eru rangar. Engin áform eru uppi um að lánardrottnar breyti skuldum félagsins í hlutafé eða eignist hlutafé í félaginu. Þá er rétt að fram komi að Actavis hefur undanfarið átt í mjög góðu samstarfi við lánardrottna félagsins um skuldastöðu þess og á enn," segir í yfirlýsingu sem send var á fjölmiðla þann 16. janúar sl.



















