Viðskipti
| mbl
| 4.3.2010
| 13:04
Evruvextir óbreyttir
Seðlabanki Evrópu breytti ekki stýrivöxtum sínum í dag og verða þeir áfram 1%. Hagfræðingar búast við því að vextirnir verði áfram mjög lágir út þetta ár. Fyrr í dag ákvað peningastefnunefnd Englandsbanka að hafa stýrivexti bankans áfram 0,5%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















