Viðskipti
| mbl
| 4.3.2010
| 17:47
| Uppfært
18:53
Nauðasamningar Bakkavarar samþykktir
Kröfuhafar í Bakkavör Group samþykktu á fundi í dag nauðasamninga félagsins. Ef héraðsdómur staðfestir niðurstöðuna eignast kröfuhafar félagið að fullu en núverandi aðaleigendur, bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, eiga kost á að eignast hlut í því síðar ef því tekst að greiða skuldir sínar.
Nauðasamningarnir voru samþykktir af um 90% kröfuhafa og þeir sem samþykktu eiga um 98% krafna í félagið.
Íslenskir lífeyrissjóðir eiga háar kröfur í Bakkavör. Flestir þeirra samþykktu samningana en einhverjir sátu hjá.
Ágreiningur er enn um hluta krafna Kaupþings banka á hendur félaginu.
Samþykktar kröfur voru rúmir sextíu milljarðar kr.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















