Viðskipti
| Morgunblaðið
| 4.3.2010
| 5:30
| Uppfært
6:45
Til ráðgjafar fyrir lífeyrissjóði vegna Byrs
Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP-banka, var ráðinn til lífeyrissjóðanna sem ráðgjafi vegna krafna þeirra á hendur Byr.
Styrmir Þór var forstjóri MP þegar bankinn hagnaðist af viðskiptum við einkahlutafélagið Exeter Holding. Félagið keypti þá stofnfé í Byr af stjórnarmönnum sparisjóðsins á yfirverði. Byr fjármagnaði kaupin. Lítið mun fást upp í það lán.
Greint var frá því í fréttum Stöðvar 2 28. febrúar að Styrmir væri meðal þeirra sem hefðu réttarstöðu grunaðra í málinu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur hann dregið sig í hlé frá störfum í þágu lífeyrissjóðanna tengdra Byr eftir að greint var frá réttarstöðu hans í fjölmiðlum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















