Einkaneysla svipuð og 2004
mbl.is
Landsframleiðslan árið 2009 er talin hafa numið 1500 milljörðum króna borið saman við 1477 milljarða árið áður en það er 23 milljörðum eða 1,5% hærri fjárhæð en árið áður.
Að teknu tilliti til verðbreytinga dróst landsframleiðslan saman að raungildi um 6,5% að sögn Hagstofunnar.Landsframleiðsla á árinu 2009 nam svipaðri fjárhæð og landsframleiðsla ársins 2006, mæld á föstu verðlagi. Mannfjöldinn var nánast jafnmikill árin 2008 og 2009 og því dróst landsframleiðslan á mann einnig saman að raungildi um 6,5% árið 2009 en hafði árið áður dregist saman um um 1,6%.
Einkaneysla dróst saman um 14,6% á árinu 2009 og er þetta mesti samdráttur einkaneyslu frá því að sjálfstæðar einkaneyslurannsóknir hófust hérlendis árið 1957, að sögn Hagstofunnar. Á árinu 2008 dróst neyslan saman um 7,9% eftir fimm ára samfelldan vöxt. Að raungildi er einkaneysla á síðastliðnu ári svipuð og hún var á árinu 2004.



















