Stefnt að endurgreiðslu
Félagið viðurkennir skuldir móðurfélags Bakkavarar að fjárhæð rúmlega 60 milljarða króna.
Íslenskir lífeyrissjóðir og bankar eru stærstu kröfuhafarnir. Ef héraðsdómur staðfestir samningana eignast kröfuhafar félagið að fullu.
Með nauðasamningum er stefnt að því að ekki komi til afskrifta krafna heldur að þær endurheimtist að fullu. Gert er ráð fyrir því að kröfuhafar fresti innheimtu lána og skuldabréfa til ársins 2014, rúmlega helmingi sem lánum en tæpum helmingi sem hlutafé.
Koma ekki að Existu
Verði skuldir félagsins greiddar að fullu 30. júní 2014 og hlutabréfin innleyst, eiga stofnendur félagsins, þeir Ágúst Guðmundsson forstjóri og Lýður Guðmundsson stjórnarformaður, rétt á því að kaupa allt að fjórðungs hlut í félaginu aftur.Ágúst og Lýður stjórna félaginu áfram samkvæmt ákvæðum í lánasamningum við stóra lánardrottna erlendis. Með nauðasamningunum lýkur hins vegar afskiptum þeirra af fyrirtækjum hér á landi, svo sem Exista, VÍS, Símanum og Lýsingu.
Íslensku kröfuhafarnir vildu láta reyna á endurheimtu krafna sinna með áframhaldandi rekstri félagsins. Að öðrum kosti hefði móðurfélagið farið í gjaldþrot og ólíklegt að nokkuð hefði komið upp í skuldir félagsins hér á landi. helgi@mbl.is
- Eignir Bakkavarar eru í dótturfélögum erlendis · Innlendu kröfuhafarnir hafa lítil veð · Félagið þarf að greiða 100 milljarða eftir 4 ár



















