Viðskipti
| Morgunblaðið
| 6.3.2010
| 5:30
| Uppfært
6:54
Drifkraftar hagvaxtar á Íslandi sjaldan jafn máttlitlir
Þrátt fyrir að nýjustu tölur Hagstofunnar um landsframleiðslu bendi til þess að landið hafi tekið að rísa undir lok síðasta árs er ekki allt sem sýnist. Landsframleiðslan dróst saman að raungildi um 6,5% í fyrra og er um að ræða mesta samdrátt á ársgrundvelli allan lýðveldistímann.
Mestur var samdrátturinn fyrstu þrjá mánuði ársins, ríflega 9%, en svo rættist aðeins úr málum undir árslok.
Samkvæmt Hagstofunni var 3,3% hagvöxtur á milli 3. og 4. ársfjórðungs í fyrra en hinsvegar er hann að mestu tilkominn vegna fjárfestingar í skipum og flugvélum undir lok ársins fyrir ríflega 11 milljarða króna.
Hér er því ekki að ræða um varanlegan viðsnúning heldur vöxt vegna einstaka fjárfestingar. Við þetta bætist að Hagstofan segir að leiðrétting útreikninganna um árstíðabundna þætti ofmeti hagvöxtinn á milli 3. og 4. ársfjórðungs í fyrra.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















