Viðskipti
| AFP
| 8.3.2010
| 9:21
Hagvöxtur í Frakklandi veldur vonbrigðum
Hagvöxtur í Frakklandi á fyrsta ársfjórðungi 2010 var 0,4%, samkvæmt nýjum tölum hins franska seðlabanka, sem í febrúar hafði spáð því að hagvöxtur á árfjórðungnum yrði 0,5%.
Miklar vonir höfðu verið bundnar við franska hagkerfið, þar sem það óx mest allra a evrusvæðinu á síðasta ársfjórðungi 2009, þegar hagvöxtur í Frakklandi var 0,6%.
Frönsk stjórnvöld hafa spáð því að hagvöxtur á þessu ári verði 1,4%, en hagkerfið franska skrapp saman um 2,2% á síðasta ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















