Viðskipti
| mbl
| 8.3.2010
| 6:22
Jafnvel von á tilboði frá Actavis í dag
Samheitalyfjafyrirtækið Actavis mun að öllum líkindum leggja fram tilboð í dag í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm, samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar. Samkvæmt Financial Times þrýstir Deutsche Bank, helsti lánadrottinn Actavis, mjög á að félagið sameinist Ratiopharm en Actavis skuldar þýska bankanum 5 milljarða evra, rúmlega 870 milljarða króna, samkvæmt FT í dag.
Stærsta lyfjafyrirtæki heims, Pfizer, ætlar sér hins vegar að eignast Ratiopharm en á föstudag kom forstjóri Pfizer, Jeff Kindler, ásamt fríðu föruneyti í höfuðstöðvar Ratiopharm í bænum Ulm og kynnti hugmyndir Pfizer hvað varðar Ratiopharm. Samkvæmt heimildum Reuters lofaði hann gulli og grænum skógum.
Frétt Reuters
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















