Markaðurinn mun bjarga Íslandi
Danske bank
Sérfræðingur Danske Bank segir í samtali við fréttavef blaðsins Børsen, að Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn muni aldrei láta það gerast, að vestur-evrópskt land verði gjaldþrota. Slíkt myndi hafa gríðarlegar afleiðingar á fjármálamarkaði. Þess vegna geti Ísland væntanlega fengið lán á alþjóðlegum mörkuðum þrátt fyrir deiluna við Breta og Hollendinga um Icesave.
Per Magnussen, sérfræðingur Danske Bank, segir við Børsen, að Íslendingar vilji, með því að hafna Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag, freista þess að fá lægri vexti og hagstæðari skilmála á lánum, sem Bretar og Hollendingar veiti þeim vegna Icesave.
En bæði England og Holland eru aðilar að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og því gæti það orðið erfitt fyrir Ísland að fá frekari lán þar náist ekki samkomulag í Icesave-málinu. En hins vegar muni óttinn við hugsanlegt ríkisgjaldþrot Íslands leiða til þess að Ísland fái þá fyrirgreiðslu sem það þurfi.
„Markaðurinn myndi bregðast hart við ef vestur-evrópskt land yrði gjaldþrota. Þess vegna verður allt gert til að koma í veg fyrir slíkt," segir Magnussen.
Hann segir jafnframt, að það sé afar áhættusamt að fjárfesta í íslenskum skuldabréfum.



















