Viðskipti
| Morgunblaðið
| 9.3.2010
| 5:30
| Uppfært
5:51
Arion bíður með viðbrögð við skattaáliti
Arion-banki mun ekki bregðast við áliti ríkisskattstjóra um að þeir starfsmenn Kaupþings sem fengu skuldir sínar við bankann felldar niður þurfi að greiða skatt á niðurfellingunni á meðan þessi mál eru til skoðunar sérstaks saksóknara.
Þetta staðfestir Berghildur Bernharðsdóttir upplýsingafulltrúi Arion. Rannsókn embættis sérstaks saksóknara snýst um hvort niðurfellingin hafi á sínum tíma verið refsiverð.
Um er að ræða lán til 130 starfsmanna Kaupþings og nam lánsfjárupphæðin tæpum fimmtíu milljörðum króna.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















