Evrópskur gjaldeyrissjóður í burðarliðnum
Evrur. . reuters
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er nú í viðræðum við aðildarríki evrusvæðisins um að koma laggirnar Gjaldeyrissjóð Evrópu.
Honum yrði ætlað að virka á svipaðan hátt og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerir, það er að koma skuldsettum aðildarríkjum evrusvæðisins til aðstoðar þegar þörf er á og koma þar með í veg fyrir að vandi einstakra ríkja hafi kerfislæg áhrif á Efnahags- og myntbandalagið.
Samkvæmt breska blaðinu Financial Times hafa þýskir og franskir embættismenn unnið að hugmyndinni að undanförnu og hefur sú vinna haft að leiðarljósi að tryggja frekara efnahagssamstarf á evrusvæðinu og miðað að auknu eftirliti með efnahagsþróun á evrusvæðinu.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.



















