Viðskipti
| mbl
| 9.3.2010
| 12:43
| Uppfært
13:09
Færri lán á athugunarlista Kaupþings
Lán til á annað hundrað lántakenda eru metin á 451 milljarð króna í bókum skilanefndar Kaupþings um síðustu áramót. Hlutfall útlána Kaupþings sem voru á athugunarlista hefur lækkað verulega á einu ári. Í árslok 2008 voru þau metin á 338 milljarða króna.
Í desember 2008 var 76% af útlánum í Evrópu á athugunarlista hjá bankanum.
41% af útlánum á Norðurlöndum voru í mars einnig á athugunarlista. Meðal ástæða fyrir því að útlán voru sett á athugundarlista er að þau séu ekki skilum og eða skilyrði þeirra ítrekuð brotin.
Í árslok hafði mjög fækkað á athugunarlistanum. Þá voru 24% af evrópsku útlánunum enn á athugunarlista og 11% af norrænu útlánunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















