Viðskipti
| AFP
| 9.3.2010
| 21:34
Hækkun á Wall Street
Helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu á Wall Street í kvöld en í dag er ár liðið frá því að hlutabréf byrjuðu að hækka í verði á ný í Kauphöllinni í New York eftir niðursveifluna. Dow Jones hækkaði um 11,86 stig eða 0,11% og er 10.564,38 stig.
Nasdaq hækkaði um 0,36% og Standard & Poor's 500 um 0,17%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















