Tap Whistles 5,1 milljón punda
Úr Whistlesverslun í London
Breska tískuvörukeðjan Whistles tapaði 5,1 milljón punda, 980 milljónum króna, á síðasta ári en keðjan var áður hluti af Mosaic Fashions sem Baugur átti að stærstum hluta. Keðjan var endurfjármögnuð eftir gjaldþrot Baugs og er nú rekið sem sjálfstætt fyrirtæki.
Jane Shepherdson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Topshop hefur verið forstjóri Whistles í tvö ár en hún keypti sig inn í félagið í ársbyrjun 2008. Hún hefur gagngert breytt áherslum Whistles og segir í frétt Guardian að hún hafi skapað Topshop fyrir fullorðna.
Veltan á síðasta ári nam 35,2 milljónum punda en rekstrarkostnaðurinn var 24,3 milljónir punda eða tæplega 70% af sölu. Enginn arður var greiddur til hluthafa en núverandi hluthafar eru samkvæmt frétt Guardian sáttir við þær breytingar sem gerðar hafa verið á keðjunni.
Samkvæmt frétt Guardian komu nýir hluthafar inn í Whistles í janúar í fyrra en einhverjum skuldum félagsins við Glitni hafi einnig verið breytt í hlutafé.



















