Viðskipti
| AFP
| 10.3.2010
| 21:56
Auknin sala heildsala sendir góða strauma á Wall Street
Hlutabréfavísitölur hækkuðu á Wall Street í dag eftir að birtar voru tölur um aukna sölu og minni birgðir heildsala. Allar slíkar jákvæðar upplýsingar auka væntingar um að efnahagsbati sé í nánd í þessu stærsta hagkerfi heimsins, Bandaríkjunum.
Dow Jones hækkaði um 2,95 stig eða 0,03% og er lokaverð hennar 10.567,33 stig. Nasdaq hækkaði um 0,78% og Standard & Poor's 500 0,45%.
Skýrsla stjórnvalda um að birgðir heildsala hafi minnkað um 0,2% í janúar kom ýmsum þægilega á óvart því spár hljóðuðu upp á 0,2% birgðaaukningu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















