Carlos Slim Helú ríkastur

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Mexíkóski kaupsýslumaðurinn Carlos Slim Helú er ríkasti maður heims um þessar mundir að mati bandaríska viðskiptatímaritsins Forbes. Litlu munar þó á honum og Bill Gates, stofnandi Microsoft, er í 2. sæti; eignir Helú og fjölskyldu hans eru metnar á 53,5 milljarða dala, jafnvirði tæplega 7400 miljarða króna, eignir Gates eru metnar á 53 milljarða dala.

Björgólfur Thor Björgólfsson hefur undanfarin ár verið á þessum lista og var á síðasta ári  í 701.-793. sæti en eignir hans voru þá metnar á 1 milljarð dala. Hann er ekki lengur á listanum.

Greinilegt er að efnahagsástandið í heiminum er heldur að batna því eignir 10 ríkustu manna heims eru nú metrar á samtals 342 milljarða dala en voru taldar 254 milljarðar dala á síðasta ári.  

„Heimsbúskapurinn er að ná sér á strik. Fjármálamarkaðirnir eru á leið upp, einkum í nýmarkaðsríkjum," sagði Steve Forbes, aðalritstjóri tímaritsins.

Alls eru nú 1011 milljarðamæringar í dölum í 55 ríkjum að mati Forbes en þeir voru í fyrra 793. Metið var hins vegar sett árið 2008, 1125 milljarðamæringar. 

Slim, sem er sjötugur að aldri, er í 1. sæti á listanum í fyrsta skipti. Slim var í þriðja sæti í fyrra en rekstur farsímafyrirtækisins America Movil sem hann á, stærsta farsímafélag Latnesku Ameríku, gekk vel á síðasta ári og það reið baggamuninn.

Flestir milljarðamæringarnir eru þó áfram í Bandaríkjunum, 403 talsins. 97 eru nýir á listanum og búa 62 þeirra í Asíu þar sem mikill hagvöxtur hefur verið víða þrátt fyrir fjármálakreppuna.  Næstflestir milljarðamæringar eru nú í Kína, 64 og 62 í Rússlandi.

248 milljarðamæringar búa í Evrópu og er ríkasti maður álfunnar Frakkinn Bernard Arnault, en hann á fyrirtækið LVMH sem selur Louis Vuitton töskur,  Moet & Chandon kampavín og aðrar lúxusvörur. Eignir hans eru metnar á 27,5 milljarða dala. Spánverjinn Amancio Ortega, sem á verslunarkeðjuna Zöru, er næstríkastur ern hann er talinn eiga  25 milljarða dala.

Svíinn Ingvar Kamprad, stofnandi Ikea, er 11. ríkasti maður heims en eignir hans eru metnar á 23 milljarða dala. Stefan Persson, landi hans,sem auðgaðist á verslunarkeðjunni Hennes & Mauritz, er í 13. sæti en hann er talinn eiga 22,4 milljarða.

Listinn yfir ríkasta fólk heims:

  1. Carlos Slim Helú, Mexíkó, fjarskipti, 53,5 milljarðar dala
  2. Bill Gates, Bandaríkin, Microsoft. 53  milljarðar dala
  3. Warren Buffett, Bandaríkin, Berkshire Hathaway. 47 milljarðar dala
  4. Mukesh Ambani, Indland, olía, gas. 29 milljarðar dala
  5. Lakshmi Mittal, Indland, stál. 28,7  milljarðar dala
  6. Lawrence Ellison, Bandaríkin, Oracle. 28  milljarðar dala
  7. Bernard Arnault, Frakkland LVMH lúxusvörur. 27.5 milljarðar dala
  8. Eike Batista, Brasilía, námugröftur, olía. 27  milljarðar dala
  9. Amancio Ortega, Spáni, Zara. 25  milljarðar dala
  10. Karl Albrecht, Þýskalandi, stórverslanir. 23,5  milljarðar dala
  11. Ingvar Kamprad og fjölskylda, Svíþjóð, Ikea. 23 milljarðar dala
  12. Christy Walton og fjölskylda, Bandaríkin, Walmart. 22,5  milljarðar dala
  13. Stefan Persson, Svíþjóð Hennes & Mauritz. 22,4  milljarðar dala
  14. Li Ka-shing, Hong Kong, ýmsar fjárfestingar. 21  milljarður dala
  15. Jim Walton. Bandaríkjunum, Walmart. 20,7 milljarðar dala
  16. Alice Walton, Walmart. 20,6 milljarðar dala
  17. Liliane Bettencourt, Frakkland,  L'Oreal. 20  milljarðar dala
  18. S. Robson Walton, Walmar. 19,8  milljarðar dala
  19. Alwaleed Bin Talal Alsaud, Sádi Arabía, fjárfestingar. 19,4  milljarðar dala
  20. David Thomson og fjölskylda, Kanada, erfðir. 19  milljarðar dala.

Umfjöllun Forbes

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Hækkun í Evrópu

08:44 Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað frá því viðskipti hófust klukkan átta í morgun. Er hækkunin rakin til samþykktar gríska þingsins á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Hækkun í Asíu

07:03 Nikkei hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,58% í Tókýó í dag í kjölfar samþykktar gríska þingsins á umdeildum niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Slæm staða Olympus

07:10 Tap japanska myndavélaframleiðandans Olympus nam 33,08 milljörðum jena, 52 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins, apríl-desember. Meira »

Grunaðir um skattsvik

Skrifstofa Royal Bank of Scotland í Lundúnum.
Í gær, 14:37 Bresk skattayfirvöld segja fimm starfsmenn Royal Bank of Scotland hafa verið handtekna vegna gruns um skattsvik. Fjórir hinna handteknu starfa enn hjá bankanum en einn hefur látið af störfum. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

11.2. Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.
10.2. Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Evran hækkar í Asíu

06:29 Evran hefur hækkað á mörkuðum í Asíu í dag í kjölfar þess að gríska þingið samþykkti nýjar aðhaldsaðgerðir í gærkvöldi sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fóru fram á gegn því að Grikkir fengju nýjan björgunarpakka. Meira »

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

Arion banki.
í fyrradag Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er ekki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankanum vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
10.2. Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Verne Global í samstarf við Opin kerfi

Fyrirtækið Opin kerfi er með höfuðstöðvar við Höfðabakka í Reykjavík.
10.2. Verne Global tilkynnti í gær að það hafi valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. Verne Global opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ. Meira »

Lítill áhugi hjá útlendingum

10.2. Svo virðist sem erlendir aðilar hafi verið afar áhugalitlir um þau tvö ríkisbréfaútboð Lánamála sem fóru fram í janúarmánuði. Meira »

Lækka lánshæfiseinkunn ítalskra banka

10.2. Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 34 ítalskra banka. Um miðjan janúar lækkaði fyrirtækið lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins um tvo punkta. Meira »

Lækkun á Wall Street

Bandarískir hlutabréfamarkaðir hafa lækkað það sem af er degi
10.2. Bandarískar hlutabréfavísitölur hafa lækkað það sem af er degi vegna Grikklands-vandans og minni þenslu í kínversku efnahagslífi. Meira »

Litlar breytingar á krónunni

10.2. Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting orðið þar á það sem af er febrúar.  Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir