Fá kaupauka þrátt fyrir tap
Hagnaður Northern Rock nam 466,7 milljónum punda á síðari hluta ársins en á fyrri hluta ársins 2009 nam tap hans 724,2 milljónum punda. Fyrir árið í heild nam tap bankans fyrir skatta 257,5 milljónum punda en árið 2008 tapaði Northern Rock 1,355 milljörðum punda.
Northern Rock, sem er fimmti stærsti lánveitandi Bretlands, varð fyrir áhlaupi sparifjáreigenda í september 2007 er Englandsbanki staðfesti að hafa veitt bankanum neyðarfjármögnun. Stjórnvöld dældu 27 milljörðum punda inn í bankann og tryggði innistæður upp á 29 milljarða punda áður en bankinn var þjóðnýttur í febrúar 2008.
Frá yfirtökunni á Northern Rock hafa bresk stjórnvöld einnig yfirtekið lánafyrirtækið Bradford & Bingley, 84% hlut í Royal Bank of Scotland og 43% hlut í Lloyds Banking Group.



















