Viðskipti
| AFP
| 10.3.2010
| 15:56
Fortis gert að greiða sekt fyrir markaðsmisnotkun
Hollenska fjármálaeftirlitið hefur sektað tryggingafélagið Fortis Holding um 576 þúsund evrur, rúmar 100 milljónir króna, fyrir markaðsmisnotkun og að hafa ekki opinberað upplýsingar sem gætu haft áhrif á verð hlutabréfa félagsins.
Segir í tilkynningu frá fjármálaeftirlitinu að Fortis hafi verið gert að greiða fjórar sektir í síðasta mánuði, hver þeirra er upp á 144 þúsund evrur. Tengist þetta aðgerðum félagsins í tengslum við yfirtöku Fortis á hollenska bankanum ABN Amro árið 2007.
Í október 2008 var banka- og tryggingasamstæðunni Fortis skipt upp. Var bankastarfsemin í Hollandi, þar á meðal ABN Amro, þjóðnýtt af hollenska ríkinu.
Í Belgíu tók franski bankinn BNP yfir bankastarfsemi Fortis. Fortis Holding er enn með tryggingastarfsemi í Belgíu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















