Viðskipti
| AFP
| 10.3.2010
| 22:13
Olíuverð hækkar á ný
Verð á hráolíu hækkaði á nýjan leik í kvöld eftir að í ljós kom að eldsneytisbirgðir hafi minnkað í Bandaríkjunum. Eins höfðu fregnir af auknum útflutningi Kínverja áhrif til hækkunar. Á NYMEX markaðnum í New York hækkaði verð á hráolíu um 60 sent í kvöld og er 82,09 dalir tunnan.
Í Lundúnum hækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 58 sent og er 80,48 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















