Viðskipti
| Morgunblaðið
| 11.3.2010
| 5:30
| Uppfært
6:16
Íslensk afþreying seldi Saga Film rétt fyrir gjaldþrot
Íslensk afþreying seldi 63,2% hlut í European Film Group (EFG) óstofnuðu félagi í eigu leikstjórans Ragnars Agnarssonar um miðjan maí 2009.
Skömmu síðar, eða í júlíbyrjun 2009, óskaði stjórn Íslenskrar afþreyingar eftir gjaldþrotaskiptum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Stoðir Invest, fjárfestingafélag sem var í eigu Baugs og tengdra félaga og er einnig gjaldþrota, átti tæplega 37% hlut í European Film Group á móti Íslenskri afþreyingu.
Skiptastjóri Íslenskrar afþreyingar kannar nú hvort einhver verðmætum hafi verið skotið undan við slíkar sölur.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















