„Sneru blaðinu algerlega við“
Frá hluthafafundi í apríl 2007. Frá vinstri: Einar Sveinsson, Hannes Smárason, Jón Sigurðsson, Þorsteinn M. Jónsson, Karl Wernersson, Skarphéðinn Berg Steinarsson, Björn Ingi Sveinsson og Bjarni Ármannsson. Rax/Ragnar Axelsson
Einar Sveinsson, fyrrverandi stjórnarformaður Glitnis, segir að allar aðgerðir stjórnar og stjórnenda bankans á vormánuðum 2006 hafi miðast við að stöðva vöxt bankans og taka efnahag hans til alvarlegrar endurskoðunar.
Alþjóðleg lánsfjárþurrð hafi orðið í kjölfar hinnar svonefndu Íslandskrísu, en þó hafi rofað til um haustið og útlitið verið bjartara í lok ársins. Stjórnarmönnum hafi verið ljóst að endurskipuleggja þyrfti efnahagsreikning bankans og skerpa áherslur.
„En það er alveg ljóst að nýir eigendur bankans sneru blaðinu algerlega við,“ segir Einar í samtali við Morgunblaðið.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag.



















