Viðskipti
| mbl
| 12.3.2010
| 15:37
ALP kaupir 160 bíla af Heklu
Sverrir Viðar Hauksson framkvæmdastjóri Heklu og Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri ALP undirrita samninginn
Gengið hefur verið frá samningi milli Heklu og bílaleigunnar ALP, umboðsaðila Avis og Budget á Íslandi, um kaup bílaleigunnar á 160 nýjum Volkswagen Golf og Volkswagen Polo. Hekla mun afhenda bílana á vormánuðum, samkvæmt fréttatilkynningu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















