Viðskipti
| Morgunblaðið
| 12.3.2010
| 5:30
Deilt um heildsöluinnlán
Skilanefndir Landsbankans og Glitnis hafa tekið á mismunandi hátt á þeirri spurningu hvort heildsöluinnlán eigi að teljast forgangskröfur í þrotabú bankanna eins og almenn innlán.
Glitnir hefur ákveðið að svo sé ekki, en Landsbankinn hefur samþykkt forgangsstöðu þeirra.
Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, segir að það hafi alltaf legið fyrir að spurningin um lagalega stöðu heildsöluinnlána færi fyrir dómstóla.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















