Góð afkoma Ratiopharm
Þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm hagnaðist um 307 milljónir evra, 53,3 milljarða króna, fyrir skatta á síðasta ári. Er þetta betri afkoma heldur en fyrirtækið gerði ráð fyrir. Actavis er eitt þriggja lyfjafyrirtækja sem keppa um að kaupa Ratiopharm.
Sala Ratiopharm nam 1,6 milljörðum evra á síðasta ári, sem er svipað og árið á undan.
Auk Actavis keppa Pfizer og Teva um Ratiopharm.
Ratiopharm er fjölskyldufyrirtæki á meðan að Teva er stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims og Pfizer er stærsta lyfjafyrirtæki heims.
Eigandi Ratiopharm er Merckle fjölskyldan þýska og á að selja Ratiopharm til að grynnka á skuldum eignarhaldsfélags fjölskyldunnar. Fjölskyldufaðirinn, Adolf Merckle, framdi sjálfsvíg í janúar í fyrra eftir að hafa tapað mjög á hruni hlutabréfa.



















