Landsbanki lánaði XL í gegnum Straum
Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is
Landsbankinn lánaði Straumi 20 milljónir Bandaríkjadala haustið 2008 í þeim tilgangi að Straumur myndi lána áfram til XL Leisure Group, sem var þá að stórum hluta í eigu Eimskips hf. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll 1. mars síðastliðinn. Um er að ræða tvo aðskilda lánasamninga, sem eru dagsettir 15. ágúst og 3. september 2008.
Haldið innan marka
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var þessi hátturinn hafður á til þess að halda beinni áhættu gagnvart Eimskipi innan marka Fjármálaeftirlitsins (FME). En samkvæmt reglum FME má áhætta viðskiptabanka gagnvart einstökum viðskiptavini ekki nema meira en 25% af eigin fé bankans.
Eimskip var einn stærsti viðskiptavinur Landsbankans, en bankinn fjármagnaði að miklu leyti skuldsettar yfirtökur Eimskips á fyrirtækjum víða um heim. Aðaleigandi Landsbankans, Björgólfur Guðmundsson, var jafnframt stærsti eigandi Eimskips.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins tíðkaðist það hjá Straumi að vera milliliður í lánaviðskiptum sem þessum. Þannig lánaði Landsbankinn til Straums, til þess eins að lána áfram til XL Leisure Group. Þetta staðfesti Magnús Ingi Einarsson, starfsmaður Straums, fyrir héraðsdómi þegar hann gaf þar munnlega skýrslu.
Í dómnum frá 1. mars kemur jafnframt fram að fleiri sambærileg verkefni hafi verið unnin innan Straums. Þannig hafi Landsbankinn lánað tugi milljóna Bandaríkjadollara og Kanadadollara til Straums, til þess eins að Straumur lánaði peningana áfram.



















