Líf að færast í evrópska smásölu
Svo virðist sem líf sé að færast í viðskipti með smásölufyrirtæki í Evrópu á ný eftir ládeyðu eftir að fjármálakreppan skall á. Í fréttaskýringu Reuters fréttastofunnar um smásölumarkaðinn kemur fram að gjaldþrot Baugs hafi skilið eftir nokkrar mögulegar yfirtökur þar sem þjóðnýttur banki hafi tekið eignir Baugs yfir og ætli sér ekki að eiga þær til langs tíma.
Sérfræðingur Barclays bankans í yfirtökum telur að fyrirtæki eins og Aurora Fashions, sem á og rekur verslanir eins og Karen Millen, Coast, Warehouse og Oasis, Aurum, sem á Goldsmiths og Mappin & Webb og Iceland keðjan verði öll til sölu fljótlega.
Er Philip Green nefndur sem mögulegur kaupandi en eins og fram hefur komið þá lýsti hann því yfir fljótlega eftir hrunið á Íslandi að hann hefði áhuga á að auka við eign sína. Meðal fyrirtækja sem eru í eigu hans er vöruhúsið Debenhams. Nýverið eignaðist hann Principles tískumerkið og danska Magasin du Nord.
Fréttaskýring Reuters um smásölumarkaðinn í Evrópu



















