Rætt um farsíma sem markaðstæki
Þótt allir eigi farsíma er markaðshlutdeild farsímaauglýsinga lítil og hefur ekki vaxið. Sú skoðun kom hins vegar fram á svonefndri RIMC ráðstefnu í Smáralind í morgun, að á þessu ári kunni þar að verða breyting á.
Á ráðstefnunni, sem fjallar um markaðsmál á netinu, er sjónum einkum beint að markaðssetningu og sölu í gegnum farsíma.
Gene Ehrbar, sem hefur þróað forrit yfirr iPhone síma Apple, sagði á ráðstefnunni að nú fyrst væru komnir fram nothæfir símar, sem mætti líta á sem þriðju kynslóð farsíma og væru öflugri en einkatölvur voru fyrir um það bil 20 árum.
Fram kom hins vegar hjá Allen McCaskill, sem starfar hjá Ericsson í Bretlandi, að neytendur treysti farsímum sem auglýsingamiðli enn ekki eins vel og öðrum miðlum, svo sem blöðum, sjónvarpi, útvarpi og netinu.



















