Rýmkaði reglur en hefði átt að herða þær

stækka

Ómar Óskarsson

Fullyrt er í skýrslu um aðdraganda falls íslensku krónunnar, sem hagfræðingur hefur samið, að Seðlabankinn hafi rýmkað reglur um kaup á gjaldeyri, þegar eðlilegra hefði verið að þrengja reglurnar.

Fjallað var um skýrsluna í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi en skýrslan er eftir Bjarna Kristjánsson, hagfræðing, sem var umfangsmikill gjaldeyrismiðlari. Þar kom fram, að bankarnir hafi unnið gegn þeim vörnum sem þeir seldu viðskiptavinum sínum  með stórfelldri stöðutöku gegn krónunni á sama tíma. Þetta hafi verið gert með fullu leyfi Seðlabankans og talið liður í eðlilegum vörnum þeirra.

Bjarni telur að bankarnir hafi gengið lengra í kaupum á gjaldeyri en sem nam vörnunum og það hefði Seðlabankinn átt og getað komið í veg fyrir. Kaupþing er sérstaklega nefnt í þessu sambandi. Stór hluti af hagnaði bankanna síðustu tólf mánuðina fyrir fall þeirra hafi verið hagnaður vegna stöðutöku gegn krónunni sem hafi verið fjandsamleg hagsmunum lands og þjóðar.

Í skýrslunni segir að bankarnir hafi kerfisbundið keypt gjaldeyri til að auka hagnað við árshlutauppgjör og þannig blekkt markaðinn. 60-80%  af hruni krónunnar megi rekja beint til kaupa bankanna á gjaldeyri. Seðlabankinn hafi ekki haft eftirlit með þessum gjörningi bankanna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Goldsmiths á Heathrow

Hagnður Aurum eykst um 53%

11:01 Hagnaður Aurum Holdings skartgripakeðjunnar jókst um 53% á síðasta rekstrarári en keðjan er í eigu slitastjórnar Landsbankans. Meira »

Þörf á 33.500 nýjum þotum

10:42 Flugfélög heimsins þurfa á 33.500 nýjum þotum að halda á næstu tveimur áratugum og væntanlega verður eftirspurnin mest í Asíu. Meira »

Lægri vextir í útboði

10:33 Ítalska ríkið tók tilboðum fyrir 12 milljarða evra í skuldabréfaútboði sem lauk í dag. Ávöxtunarkrafan á tólf mánaða skuldabréf er 2,230% samanborið við 2,735% í sambærilegu útboði í síðasta mánuði. Meira »

Helga Björk til Marel

Helga Björk Eiríksdóttir
10:21 Helga Björk Eiríksdóttir hefur verið ráðin fjárfesta- og almannatengill hjá Marel hf. og tekur við starfinu af Jóni Inga Herbertssyni, sem nú hefur látið af störfum. Meira »

Hækkun í Evrópu

08:44 Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað frá því viðskipti hófust klukkan átta í morgun. Er hækkunin rakin til samþykktar gríska þingsins á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Hækkun í Asíu

07:03 Nikkei-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,58% í Tókýó í dag í kjölfar samþykktar gríska þingsins á umdeildum niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Dregur úr verðbólgu í Slóvakíu

10:30 Verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili var 3,9% í Slóvakíu í janúar sem er talsvert minni verðbólga heldur en í desember er verðbólgan var 4,4%. Meira »

Olíuverð hækkar hressilega

10:11 Verð á olíu hefur hækkað á mörkuðum í dag í kjölfar samkomulags á gríska þinginu í gærkvöldi um að grípa til frekari niðurskurðaraðgerða. Meira »

Slæm staða Olympus

07:10 Tap japanska myndavélaframleiðandans Olympus nam 33,08 milljörðum jena, 52 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins, apríl-desember. Meira »

Grunaðir um skattsvik

Skrifstofa Royal Bank of Scotland í Lundúnum.
Í gær, 14:37 Bresk skattayfirvöld segja fimm starfsmenn Royal Bank of Scotland hafa verið handtekna vegna gruns um skattsvik. Fjórir hinna handteknu starfa enn hjá bankanum en einn hefur látið af störfum. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

11.2. Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

Evran hækkar í Asíu

06:29 Evran hefur hækkað á mörkuðum í Asíu í dag í kjölfar þess að gríska þingið samþykkti nýjar aðhaldsaðgerðir í gærkvöldi sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fóru fram á gegn því að Grikkir fengju nýjan björgunarpakka. Meira »

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

Arion banki.
í fyrradag Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er ekki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankanum vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
10.2. Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir