Viðskipti
| mbl
| 12.3.2010
| 11:48
Spá 0,6% hækkun á vísitölu
Greining Íslandsbanka spáir því, að vísitala neysluverðs hækki um 0,6% í mars. Gangi það eftir lækkar ársverðbólga úr 8,5% í 7,3%.
Íslandsbanki segir í Morgunkorni sínu, að horfur séu á að
draga fari úr verðbólgu að nýju og hún verði komin niður undir 3,5% í lok árs. Nokkurt bakslag
gæti hins vegar komið í þessa þróun í upphafi næsta árs ef óbeinir skattar verða
hækkaðir frekar um næstu áramót eins og margt bendir til að verði raunin.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















