Viðskipti
| mbl
| 12.3.2010
| 8:06
Starfsfólk SAS fellst á launalækkun
Norræna flugfélagið SAS hefur náð samningum við flugfreyjur um að laun þeirra lækki um 8% og kostnaðargreiðslur um 10%. Með þessu móti sparar félagið hálfan milljarð sænskra króna á ári og hefur þá samtals náð samningum við starfsfólk um að draga úr árlegum launakostnaði um 2,1 milljarð sænskra króna á síðasta og þessu ári.
Að sögn fréttavefjar Børsen voru viðræðurnar erfiðar. Danskar flugfreyjur gagnrýndar af samstarfsfólki sínu á hinum Norðurlöndunum fyrir óbilgirni í kröfum og sakaðar um að reyna að grafa undan flugfélaginu.
Sparnaður í launagreiðslum er skilyrði fyrir því, að ríkisstjórnirnar í Svíþjóð, Noregi og Danmörku leggi SAS til aukið hlutafé en félagið ætlar í nýtt hlutafjárútboð í apríl.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















