Varð „postulínsprins" á netinu
Netið hefur reyndst ýmsum gullnáma. Allan Dick jr., lýsti á RIMC markaðsráðstefnunni í Smáralind í dag hvernig fyrirtæki hans, Vintage Tub & Bath, breyttist á stuttum tíma úr litlu fjölskyldufyrirtæki, sem keypti notuð hreinlætistæki og seldi aftur, í fyrirtæki sem mun velta allt að 16 milljónum dala, jafnvirði 2 milljarða króna, á þessu ári.
„Við erum postulínsprinsarnir," sagði Dick þegar hann hóf fyrirlestur sinn. Hann sagði, að sala á netinu í Bandaríkjunum hefði aukist jafnt og þétt á undanförnum árum og spár gera ráð fyrir áframhaldandi aukningu. Heildarhlutfall netsölu er þó ekki nema um 6% í Bandaríkjunum þótt veltan hafi aukist.
Dick sagði að áhrifaríkasta leiðin fyrir lítil fyrirtæki, sem vildu selja vöru sína á netinu, væri að auglýsa á leitarvélum og senda auglýsingar í tölvupósti.



















