Viðskipti
| mbl
| 12.3.2010
| 14:19
Veltan 1.596 milljónir á fasteignamarkaði
Alls var 52 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 5. mars til og með 11. mars 2010. Þar af voru 36 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.596 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,7 milljónir króna.
Á sama tíma var 5 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 101 milljón króna og meðalupphæð á samning 20,2 milljónir króna.
Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Það voru samningar um eignir í fjölbýli. Heildarveltan var 60 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20 milljónir króna.
Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 66 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,8 milljónir króna, að því er segir á vef Fasteignaskrár Íslands.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















