Gríðarleg eftirspurn olíu í Kína

Olíuvinnsla í Írak stækka

Olíuvinnsla í Írak Reuters

Eftirspurn eftir olíu í Kína jókst um 28% á milli ára ef tekið er mið af mælingum í janúar á þessu ári og því síðasta, samkæmt upplýsingum frá Alþjóðlegu orkustofnuninni (IEA).

Stofnunin spáir því einnig að eftirspurn aukist eftir olíu aukist enn frekar á árinu vegna aukinnar eftirspurnar á nýmörkuðum þar sem helmingur eftirspurnar kemur frá Asíu.  Hins vegar  muni lítillega draga úr eftirspurn frá þróunarlöndum.

IEA hefur aukið við eftirspurnarspá sína eftir olíu á árinu um 1,8% og gerir ráð fyrir að þörfin verði um 86,6 milljónir tunna á dag.

Hvað þróun olíuverðs varðar segir stofnunin að hækkun síðustu tveggja mánaða hafi átt sér rætur í landfræðilegum deilum en mikið framboð olíu komi til með að jafna hana út.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Hækkun í Evrópu

08:44 Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað frá því viðskipti hófust klukkan átta í morgun. Er hækkunin rakin til samþykktar gríska þingsins á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Hækkun í Asíu

07:03 Nikkei-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,58% í Tókýó í dag í kjölfar samþykktar gríska þingsins á umdeildum niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Slæm staða Olympus

07:10 Tap japanska myndavélaframleiðandans Olympus nam 33,08 milljörðum jena, 52 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins, apríl-desember. Meira »

Grunaðir um skattsvik

Skrifstofa Royal Bank of Scotland í Lundúnum.
Í gær, 14:37 Bresk skattayfirvöld segja fimm starfsmenn Royal Bank of Scotland hafa verið handtekna vegna gruns um skattsvik. Fjórir hinna handteknu starfa enn hjá bankanum en einn hefur látið af störfum. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

11.2. Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.
10.2. Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Evran hækkar í Asíu

06:29 Evran hefur hækkað á mörkuðum í Asíu í dag í kjölfar þess að gríska þingið samþykkti nýjar aðhaldsaðgerðir í gærkvöldi sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fóru fram á gegn því að Grikkir fengju nýjan björgunarpakka. Meira »

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

Arion banki.
í fyrradag Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er ekki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankanum vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
10.2. Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Verne Global í samstarf við Opin kerfi

Fyrirtækið Opin kerfi er með höfuðstöðvar við Höfðabakka í Reykjavík.
10.2. Verne Global tilkynnti í gær að það hafi valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. Verne Global opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ. Meira »

Lítill áhugi hjá útlendingum

10.2. Svo virðist sem erlendir aðilar hafi verið afar áhugalitlir um þau tvö ríkisbréfaútboð Lánamála sem fóru fram í janúarmánuði. Meira »

Lækka lánshæfiseinkunn ítalskra banka

10.2. Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 34 ítalskra banka. Um miðjan janúar lækkaði fyrirtækið lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins um tvo punkta. Meira »

Lækkun á Wall Street

Bandarískir hlutabréfamarkaðir hafa lækkað það sem af er degi
10.2. Bandarískar hlutabréfavísitölur hafa lækkað það sem af er degi vegna Grikklands-vandans og minni þenslu í kínversku efnahagslífi. Meira »

Litlar breytingar á krónunni

10.2. Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting orðið þar á það sem af er febrúar.  Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir