Verðbólgan í Kína breytir ekki vaxtastefnunni
Seðlabankastjórinn í Kína, Zhou Xiaochuan, telur enga ástæðu til að breyta vöxtum, eða endurskoða vaxtastefnuna, þrátt fyrir aukna verðbólgu í landinu. Verðlag reyndist 2,7% hærra í febrúar en fyrir ári, eða mun meira en reiknað hafði verið með, samkvæmt frétt Bloomberg.
Vaxtastefna Kínverja byggir að miklu leyti á verðbólguhorfum og útliti almennt í efnahagslífinu, frekar en birtum hagtölum, sagði seðlabankastjórinn við fjölmiðla í þinghúsinu í Peking.
Hagtölur voru birtar fyrir helgi, sem sýndu m.a. aukinn útflutning um 46% og almennt góða afkomu kínverskra iðnfyrirtækja, þá bestu í fimm ár.
Hagfræðingar hjá fjármálafyrirtækjum á borð við Goldman Sachs, Deutsche Bank og JP Morgan Chase telja vísbendingar uppi um að kínverska hagkerfið, hið þriðja stærsta í heimi, geti ofhitnað og seðlabankinn eigi nú þegar í þessum mánuði að grípa til vaxtahækkana.
Haft er eftir seðlabankastjóranum að verðbólgutölur hafi verið hærri en bankinn átti von á, en þó ekki svo mikið að ástæða sé til að hreyfa við vöxtunum. Aukin verðbólga í febrúar er að hluta rakin til hátíðarhalda Kínverja er þeir fögnuðu nýju ári og hækkunin getu að einhverju leyti komið til baka í marsmánuði. Vonast kínversk stjórnvöld til að geta haldið verðbólgunni í landinu kringum 3% á þessu ári.



















