Lánshæfi spánskra banka lækkað
Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði í dag lánshæfismat spánska bankageirans um leið og það varaði við miklu útlánatapi bankanna vegna kreppunnar þar í landi.
Í tilkynningu frá matsfyrirtækinu sagði að líklegt væri að fjármálakerfi Spánar þyrfti að þola mikið útlánatap vegna kreppunnar, þar sem fyrirtæki væru mjög skuldsett. Líklegt væri að afskriftir lána næðu hámarki á þessu ári og næðu eitthvað fram á það næst.
S&P lækkaði því lánshæfismat spánska fjármálakerfisins úr Hópi 2 í Hóp 3. Samkvæmt skalanum (BICRA) er Hópur 10 lægsta einkunn og Hópur 1 sú hæsta.
Samkvæmt nýja matinu stendur Spánn, fjórða stærsta efnahagsveldi evrusvæðisins, nú jafnfætis Bandaríkjamönnum og Bretum og er bankakerfið metið veikara en það hjá Bretum, Frökkum og Ítölum.



















