Viðskipti
| Morgunblaðið
| 15.3.2010
| 5:30
Lítið svigrúm til málamiðlana í Kína
Leitarvélarisinn Google mun þurfa að þola afleiðingar gjörða sinna ef fyrirtækið hættir að ritskoða leitarniðurstöður í Kína, að sögn iðnaðarráðherra landsins.
Hinn tólfta janúar í ár sagðist Google ekki ætla lengur að standa við samkomulag við kínversk stjórnvöld um ritskoðun leitarniðurstaðna á netinu, en það hefur verið skilyrði fyrir því að Google megi starfa í landinu.
Ein af ástæðunum, sem Google gaf fyrir ákvörðun sinni, var sú að tölvuþrjótar á vegum kínverska ríkisins hefðu reynt að brjótast inn í tölvur fyrirtækisins.
Síðan þá hefur Google átt í viðræðum við þarlend stjórnvöld um lausn deilunnar. Yfirlýsing ráðherrans bendir hins vegar til þess að lítið rúm sé fyrir málamiðlanir.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















