Segja frásögn um bilaðan Prius ekki standast

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Japanski bílaframleiðandinn Toyota Motor segir, að frásögn bandarísks eiganda Toyota Prius, sem sagði að bensíngjöf bílsins hefði fests í botni, standist ekki og rannsóknir á bílnum hafi leitt í ljós að bensínfetillinn og öryggiskerfi bílsins virki eins og til sé ætlast.

Toyota sagði ekki berum orðum, að James Sikes hefði sviðsett atvikið en sagði að rannsóknir á bílnum staðfestu ekki frásögn hans. En Mike Michel, talsmaður Toyota, sagði á blaðamannafundi að rannsóknirnar sýndu, að Sikes hefði þrýst á bensínfetilinn og bremsurnar til skiptis yfir 250 sinnum. Engar skýringar hefðu fengist á þessu. 

James Sikes sagðist hafa verið að aka Priusnum sínum, árgerð 2008, á hraðbraut utan við San Diego á mánudag þegar hann tók eftir því að bíllinn fór að auka hraðann af sjálfu sér.  

Sikes sagði við sjónvarpsstöðina CNN, að hann hefði verið á hraðbrautinni og verið að auka hraðann lítillega til að fara framúr öðrum bíl sem ekið var inn á hraðbrautina. Hann hafi þá fundið, að bensínfetillinn hagaði sér einkennilega og haldið áfram í botn.  

Umferðarlögregla Kalíforníu sagði að Sikes hafi hringt í neyðarlínu og lýst því skelfingu lostinn þegar hann reyndi að halda stjórn á bílnum sem æddi áfram á yfir 140 kílómetra hraða. 

Lögreglu tókst loks að aðstoða Sikes við að stöðva bílinn og leiðbeindi honum gegnum hátalara um hvernig hann gæti notað handbremsuna og síðan drepið á vélinni.  

Rannsóknarnefnd bandarískra umferðarslysa og Toyota sendu sérfræðinga til San Diego til að skoða bílinn. Málið vakti mikla athygli en Toyota hefur átt undir högg að sækja vegna galla í bílum og hafa yfir 8 milljónir bíla verið innkallaðar að undanförnu vegna þess að bensíngjöf bílanna getur fests.

Toyota segist hafa rannsakað bíl Sikes í tvo daga. Bremsurnar að framan voru mjög illa farnar vegna ofhitnunar en bremsurnar að aftan voru í ágætu lagi. Ekkert annað fannst að bílnum. 

Í yfirlýsingu frá lögmanni Sikes segir, að hann ætli ekki að tjá sig frekar um málið fyrr en rannsókn bandarískra stjórnvalda á málinu er lokið.  

AP fréttastofan hefur eftir tveimur óháðum sérfræðingum, að rannsaka verði einnig hvort truflanir hafi orðið í rafkerfi bílsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Goldsmiths á Heathrow

Hagnður Aurum eykst um 53%

11:01 Hagnaður Aurum Holdings skartgripakeðjunnar jókst um 53% á síðasta rekstrarári en keðjan er í eigu slitastjórnar Landsbankans. Meira »

Þörf á 33.500 nýjum þotum

10:42 Flugfélög heimsins þurfa á 33.500 nýjum þotum að halda á næstu tveimur áratugum og væntanlega verður eftirspurnin mest í Asíu. Meira »

Lægri vextir í útboði

10:33 Ítalska ríkið tók tilboðum fyrir 12 milljarða evra í skuldabréfaútboði sem lauk í dag. Ávöxtunarkrafan á tólf mánaða skuldabréf er 2,230% samanborið við 2,735% í sambærilegu útboði í síðasta mánuði. Meira »

Helga Björk til Marel

Helga Björk Eiríksdóttir
10:21 Helga Björk Eiríksdóttir hefur verið ráðin fjárfesta- og almannatengill hjá Marel hf. og tekur við starfinu af Jóni Inga Herbertssyni, sem nú hefur látið af störfum. Meira »

Hækkun í Evrópu

08:44 Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað frá því viðskipti hófust klukkan átta í morgun. Er hækkunin rakin til samþykktar gríska þingsins á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Hækkun í Asíu

07:03 Nikkei-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,58% í Tókýó í dag í kjölfar samþykktar gríska þingsins á umdeildum niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Dregur úr verðbólgu í Slóvakíu

10:30 Verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili var 3,9% í Slóvakíu í janúar sem er talsvert minni verðbólga heldur en í desember er verðbólgan var 4,4%. Meira »

Olíuverð hækkar hressilega

10:11 Verð á olíu hefur hækkað á mörkuðum í dag í kjölfar samkomulags á gríska þinginu í gærkvöldi um að grípa til frekari niðurskurðaraðgerða. Meira »

Slæm staða Olympus

07:10 Tap japanska myndavélaframleiðandans Olympus nam 33,08 milljörðum jena, 52 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins, apríl-desember. Meira »

Grunaðir um skattsvik

Skrifstofa Royal Bank of Scotland í Lundúnum.
Í gær, 14:37 Bresk skattayfirvöld segja fimm starfsmenn Royal Bank of Scotland hafa verið handtekna vegna gruns um skattsvik. Fjórir hinna handteknu starfa enn hjá bankanum en einn hefur látið af störfum. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

11.2. Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

Evran hækkar í Asíu

06:29 Evran hefur hækkað á mörkuðum í Asíu í dag í kjölfar þess að gríska þingið samþykkti nýjar aðhaldsaðgerðir í gærkvöldi sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fóru fram á gegn því að Grikkir fengju nýjan björgunarpakka. Meira »

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

Arion banki.
í fyrradag Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er ekki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankanum vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
10.2. Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir