Grikkjum ekki formlega boðin aðstoð
George Papaconstantinou (t.v.) fjármálaráðherra Grikklands, kemur til fundarins í gær ásamt Christine Lagarde Frakklandi og Didier Reynders Belgíu. reuters
Fjármálaráðherrar evruríkjanna sextán ræddu í gær mögulegar leiðir til að koma Grikklandi til aðstoðar fari svo að ríkið geti ekki staðið við skuldbindingar sínar.
Ráðherrarnir buðu ekki fram aðstoð evrusvæðisins, enda hafa Grikkir ekki beðið um slíka aðstoð. Þá er staða Grikklands ekki talin jafn alvarleg og hún var í janúar og febrúar.
Vandi Grikklands hefur hins vegar undirstrikað þá staðreynd að í regluverki evrusvæðisins er ekkert að finna um hvernig taka eigi á málum aðildarríkis sem lendir í greiðslufalli.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.



















