Lettar stefna á evruna 2014
Ríkisstjórn Lettlands tilkynnti í dag að stefnt sé að upptöku evrunnar þann 1. janúar árið 2014. Er þetta í fyrsta skipti sem formlega er gefin út tímasetning á því hvenær Lettland verði væntanlega hluti af Myntbandalagi Evrópu.
Efnahagur Lettlands stendur afar höllum fæti líkt og hinna Eystrasaltsríkjanna. Ekkert ríki Evrópusambandsins hefur sokkið jafn djúpt í efnahagslægðinni sem ríkt hefur frá því árið 2008 og Lettland. Á síðasta ári dróst efnahagur landsins saman um 18% og er það mesti samdráttur í ESB-ríkjunum 27 á síðasta ári.
Hafa Lettar notið stuðnings frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Stöðugleikaáætlun Lettlands, sem er fjármögnuð með lánum frá AGS, ESB og nokkrum þjóðríkjum er metin á 7,5 milljarða evra.
Ljóst er að margt verður að breytast í Lettlandi áður en ríkið getur tekið upp evru. Samkvæmt Maastrict-samkomulaginu verða ríki að uppfylla ákveðin efnahags- og peningamálaleg skilyrði áður en þau geta tekið upp evru. Þá sérstaklega hvað varðar skuldastöðu hins opinbera og verðbólgu.
Alls eru evru-ríkin sextán í dag. Tvö þeirra eru fyrrum kommúnistaríki, Slóvenía og Slóvakía. Fastlega er gert ráð fyrir því að nágrannar Letta, Eistar, gangi í myntbandalagið á næsta ári.



















