Óbreyttir stýrivextir

Seðlabanki Bandaríkjanna. stækka

Seðlabanki Bandaríkjanna. CHIP EAST

Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnti í dag þá ákvörðun sína að halda stýrivöxtum „sérstaklega lágum“ í óákveðinn tíma. Verða vextirnir því 0,25% áfram en tillaga þess efnis var samþykkt í peningastefnunefnd bankans með 9 atkvæðum gegn 1.

Vextirnir hafa verið 0,25% frá því í desember 2008 til að styðja við efnahagsbata í landinu.  

Seðlabankinn segir, að umsvif í hagkerfinu hafi aukist og markaðir séu að ná jafnvægi. Einkaneysla aukist hóflega en sé áfram lítil vegna atvinnuleysis, takmarkaðra launahækkana og lakrar lausafjárstöðu.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Þörf á 33.500 nýjum þotum

10:42 Flugfélög heimsins þurfa á 33.500 nýjum þotum að halda á næstu tveimur áratugum og væntanlega verður eftirspurnin mest í Asíu. Meira »

Lægri vextir í útboði

10:33 Ítalska ríkið tók tilboðum fyrir 12 milljarða evra í skuldabréfaútboði sem lauk í dag. Ávöxtunarkrafan á tólf mánaða skuldabréf er 2,230% samanborið við 2,735% í sambærilegu útboði í síðasta mánuði. Meira »

Dregur úr verðbólgu í Slóvakíu

10:30 Verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili var 3,9% í Slóvakíu í janúar sem er talsvert minni verðbólga heldur en í desember er verðbólgan var 4,4%. Meira »

Olíuverð hækkar hressilega

10:11 Verð á olíu hefur hækkað á mörkuðum í dag í kjölfar samkomulags á gríska þinginu í gærkvöldi um að grípa til frekari niðurskurðaraðgerða. Meira »

Slæm staða Olympus

07:10 Tap japanska myndavélaframleiðandans Olympus nam 33,08 milljörðum jena, 52 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins, apríl-desember. Meira »

Evran hækkar í Asíu

06:29 Evran hefur hækkað á mörkuðum í Asíu í dag í kjölfar þess að gríska þingið samþykkti nýjar aðhaldsaðgerðir í gærkvöldi sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fóru fram á gegn því að Grikkir fengju nýjan björgunarpakka. Meira »

Helga Björk til Marel

Helga Björk Eiríksdóttir
10:21 Helga Björk Eiríksdóttir hefur verið ráðin fjárfesta- og almannatengill hjá Marel hf. og tekur við starfinu af Jóni Inga Herbertssyni, sem nú hefur látið af störfum. Meira »

Hækkun í Evrópu

08:44 Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað frá því viðskipti hófust klukkan átta í morgun. Er hækkunin rakin til samþykktar gríska þingsins á niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Hækkun í Asíu

07:03 Nikkei-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,58% í Tókýó í dag í kjölfar samþykktar gríska þingsins á umdeildum niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. Meira »

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

Arion banki.
í fyrradag Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er ekki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankanum vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
10.2. Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Grunaðir um skattsvik

Skrifstofa Royal Bank of Scotland í Lundúnum.
Í gær, 14:37 Bresk skattayfirvöld segja fimm starfsmenn Royal Bank of Scotland hafa verið handtekna vegna gruns um skattsvik. Fjórir hinna handteknu starfa enn hjá bankanum en einn hefur látið af störfum. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

11.2. Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.
10.2. Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir