Viðskipti
| mbl
| 16.3.2010
| 20:41
SAS gert að borga 3,5 milljarða
Boeing 737-600 flugvél Scandinavian Airlines System (SAS). HO
Dómstóll í Noregi úrskurðaði í dag að SAS Norway skyldi borga keppinauti sínum, lággjaldaflugfélaginu Norwegian Air 20 milljónir evra, rúma 3,3 milljarða dala fyrir að Norway, fyrir að hafa farið inn í upplýsingakerfi þess á ólöglegan hátt.
Árið 2007 hafði SAS Norway verið dæmt til að greiða Norwegian Air 86 milljónir íslenskra króna fyrir að nýta sér sameiginlegan aðgang að Amadeus bókunarkerfinu eftir að samningur um hann rann út. SAS nýtti sér aðganginn í þrjú ár, frá 2002-2005 til að sjá verðgrundvöll Norwegian Air.
Málinu virðist seint ljúka en árið 2008 var SAS Norway einnig gert að gert að greiða rúma þrjá milljarða íslenskra króna.
Forsvarsmenn SAS Norway íhuga nú áfrýjun.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















