Sparisjóðir árétta mikilvægi sit
Samband íslenskra Sparisjóða hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni orða fjármálaráðherra um framtíðarhlutverk sparisjóðanna fyrr í dag þar sem áréttuð er ályktun frá aðalfundi þess frá 20 . nóvember á síðasta ári en þar sagði m.a. eftirfarandi:
„Eftir uppstokkun sem óhjákvæmilega
er að verða á íslenskum fjármálamarkaði gæti farið svo að sparisjóðirnir verði
á meðal fárra fjármálafyrirtækja sem
verður stjórnað af íslenskum aðilum.
Miklar líkur eru á að viðskiptabankar í eigu erlendra aðila muni leggja áherslu
á aðra þætti í rekstri og þjónustu en sparisjóðir munu gera og hafa gert.
Því má ætla að sparisjóðirnir á Íslandi gegni mjög mikilvægu hlutverki við að
tryggja aðgang landsmanna að hagkvæmri og samkeppnishæfri fjármálaþjónustu.Sparisjóðir landsins hafa skerpt á
hugmyndafræði sinni og lýst vilja til að stokka allt sparisjóðakerfið upp sem
leiðandi afl við að byggja upp trausta fjármálaþjónustu.
Þar verður gengið út frá því að sparisjóðir verði opin fjöldahreyfing með
mikilvægt samfélagslegt hlutverk sem þeir eru tilbúnir að rækja áfram.“



















