Þrotabú Milestone selur banka
Búlgarski Samvinnubankinn, Central Co-operative Bank (CCB), hefur fengið samþykki makedóníska fjármálaeftirlitsins fyrir því að kaupa Stater Banka AD Kumanovo í Makedóníu af þrotabúi Milestone Group. Kaupverðið er 5,9 milljónir evra, um 1.020 milljónir íslenskra króna.
CCB kaupir 339.178 hluti og greiðir þrotabúi Milestone 17,3 evrur á hvern hlut, eða um 2.990 kr. Heildargreiðslan hefur þegar verið innt af hendi hjá fjárvörslustofnun í Makedóníu.
Stater Banka verður þriðji bankinn í eigu CCB í Makedóníu. Fyrir á CCB hluti í bönkunum Sileks og Post Bank. Hluturinn í Stater Banka var á meðal eigna í þrotabúi Milestone, fjárfestingafélagi sem var í eigu bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona. Ýmsar eignir komu fram í þrotabúinu en auk bankans átti það m.a. vínekru í Makedóníu.



















