Viðskipti
| mbl
| 16.3.2010
| 11:39
Veiking punds 5,71% frá áramótum
Talsverðar breytingar hafa orðið á gengi gjaldmiðla gagnvart íslensku krónunni undanfarið. Til að mynda hefur breska pundið veikst gagnvart krónunni um 5,71% frá áramótum, samkvæmt gengisskráningu Seðlabanka Íslands. Þann 1. janúar var pundið skráð 201,6 krónur en er í dag 190,095 krónur.
Evran hefur veikst um 4,21% á sama tíma, var 179,88 krónur þann 1. janúar en er í dag skráð 172,33 krónur, samkvæmt vef Seðlabanka Íslands.
Bandaríkjadalur hefur styrkst um 0,78% frá 1. janúar, var 124,9 krónur en er í dag 125,88 krónur.
Hér er hægt að bera saman gengisskráningu á vef Seðlabanka Íslands.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















