Viðskipti
| mbl
| 17.3.2010
| 15:52
Dregur úr atvinnuleysi Breta
Heldur hefur dregið úr atvinnuleysi í Bretlandi og mælist það nú 7,8%. Alls voru 2,45 milljónir Breta án atvinnu á síðasta ársfjórðungi sem lauk um áramót. Er það 33 þúsund færri heldur en næstu þrjá mánuði á undan.
Hins vegar hefur fjöldi þeirra sem teljast hafa verið án atvinnu í langan tíma, það er meira en eitt ár, aukist og eru 687 þúsund talsins. Á sama tíma hefur dregið úr atvinnuleysi meðal ungmenna á aldrinum 18-24 ára.
Alls sóttu 1,59 milljón um atvinnuleysisbætur í Bretlandi í febrúar, samkvæmt frétt BBC.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















